Hótel Skálholt býður upp á gistingu í mismunandi verðflokkum. Vinsamlega hafið samband og fáið upplýsingar og tilboð.
Í aðalbyggingu Skálholtsskóla eru 18 tveggja manna herbergi með baði.
Í Selinu eru 5 tveggjamanna herbergi með tveimur sameiginlegum snyrtingum, eldhúsi og heitum potti.
Í Skálholtsbúðum (5-6 mín. gangur frá aðalumbyggingu) eru 10 tveggjamanna herbergi og 1 einsmanns með sameiginlegum snyrtingum, eldhldhúsi, setustofu og sal til funda og tónlistaræfinga með flygli.
Í Skálholtsbúðum eru auk þess tvö orlofshús með tveimur tveggjamanna herbergjum hvort, eldhúsi og heitum potti.
Í boði eru uppbúin rúm og/eða svefnpokagisting. Bæði er hægt að kaupa tveggja manna og eins manns herbergi.