Gistiheimilið – Sunna

Gistiheimili Sunnu

Gistiheimilið – Sunna

No reviews
  • Gistiheimili Sunnu, 520 Drangsnesi, Iceland
  • +354 4513230 / +354 846 1640
  • Gistihús

Gistiþjónusta Sunnu er lítið og þægilegt gistiheimili þar sem í boði er lítil en rúmgóð stúdíóíbúð á neðri hæð. Sérinngangur er að íbúðinni og er allt aðgengi gott. Í íbúðinni eru rúm fyrir tvo ásamt ungbarnarúmi og dýnum ef óskað er. Eldhúsaðstaðan er með tveimur eldunarhellum og örbylgjuofni ásamt öllum borðbúnaði og sjónvarp með nokkrum erlendum stöðvum auk Rúv og Stöð 2. Einnig fylgir íbúðinni gasgrill. Á salerni og sturtu er innangengt úr íbúðinni. Ekki er boðið upp á morgunverð.

Drangsnes er lítið þorp við norðanverðan Steingrímsfjörð u.þ.b. 30 km norðar en Hólmavík. Í nágrenni Drangsness er margt að skoða, má þar til dæmis nefna Malarhorn og Kerlinguna innan bæjarmarkanna og einungis er um klukkustundargangur upp á Bæjarfell ofan Drangsness þar sem útsýnið yfir Steingrímsfjörð og Húnaflóa er engu líkt. Í mynni Steingrímsfjarðar er Grímsey og þangað er boðið upp á ferðir yfir sumartímann. Á Drangsnesi er ný sundlaug með heitum potti, vaðlaug og eimbaði.

Í nágrenninu má finna áhugaverð söfn, til að mynda Galdrasafnið á Hólmavík og Kotbýli Kuklarans við Klúku í Bjarnarfirði. Íslenskri sauðfjárrækt er svo gerð góð skil á Sauðfjársetri á Sævangi.

Share: Facebook Twitter LinkedIn Email

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Rate this by clicking on a star below: *