Hafdals Hótel er staðsett í Eyjafjarðarsveit aðeins í 7 mín. akstursfjarðlægð frá miðbæ Akureyrar höfuðstað Norðurlands.
Hótelið bíður upp á 8 stór og rúmgóð herbergi með sér baði.
Öll herbergin eru vel búin með setusvæði,sjónvarpi,ísskáp og ókeypis WiFi.
Útsýni er frá öllum herbergjum
Verönd/svalir er við öll herbergin þar sem gott er að sitja og njóta útsýnis yfir fjöllin, hafið og Akureyri.
Morgunverðarhlaðborð er borið fram daglega á hótelinu.
Akureyrarflugvöllur er í 8 mín. akstursfjarðlægð og skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er í 15 mín akstursfjarðlægð frá hótelinu.
Á Akureyri er líka boðið uppá sund,golf,skautahöll,hvalaskoðun,söfn menningarhúsið Hof auk mikinn fjölda verslana og veitingastaða.
Margar helstu náttúruperlur á Norðurlandi eru í minna en 1-1.5 kls. Akstursfjarðlægð frá hótelinu, t.d. Goðafoss, Mývatnsveit, Dettifoss og Ásbirgi.
Til Siglufjarðar og Húsavíkur er 1 kls. Akstursfjarðlægð.