Heimilislegt hótel og glæsileg hús í þorpinu við Glym staðsett steinsnar frá Reykjavík í fallegu umhverfi með yndislegu útsýni yfir Hvalfjörðinn. Afslappað andrúmsloft og veitingastaður með fjölbreyttu úrvali veitinga.
Herbergi – hótelið er með 22 lúxusherbergi. Öll herbergin eru á tveimur hæðum með baðherbergi og setustofu á neðri hæðinni og svefnherbergi á efri hæðinni. Öll herbergi og svítur eru afskaplega vel búin með þráðlausu interneti, sjónvarpi, síma og síðast en alls ekki síst kaffivél. Hvert herbergi er sérhannað, útbúið hágæða ítölsku leðursófasetti og skreytt einstökum listaverkum. Eitt herbergi er á jarðhæð með aðgengi fyrir hjólastóla og verönd.
Pottar – hvernig væri að slaka aðeins á? Hótelið er með tvo heita potta undir beru lofti sem, eðli málsins samkvæmt, er kjörið að slappa af í og njóta útsýnisins, hvort sem það eru Norðurljósin á köldum vetrarkvöldum eða Hvalfjörðurinn í öllu sínu veldi.
Veitingar – veitingastaður Hótel Glyms býður úrval af grænmetis-, fisk- og kjötréttum auk eftirrétta. Matseðillinn tekur stöðugum breytingum og tekur mið af árstíðum. Fallegt útsýni er úr matsal yfir Hvalfjörð. Opið daglega frá 08:00 til 21:00 (morgunverð, hádegisverð, kaffihús og kvöldverð).