Gistiheimilið – Reynir

Gistiheimilið Reynir

Gistiheimilið – Reynir

No reviews
  • Reynir - 871 - Vík í Mýrdal, Iceland
  • +354 894 9788
  • Gistihús

Gistiheimilið Reynir er fyrirtæki staðsett á Reyni í Reynishverfi. Stefna okkar er að bjóða uppá snyrtilega og notalega gistingu á góðum stað. Sumarið 2014 tókum við í notkun nýja 280 fm. byggingu sem samanstendur af 8 tveggja manna og 2, 4 manna herbergi. Í húsinu eru tvö salerni, þrjú sturtuherbergi, eldhús með matsal og einnig setuaðstaða. Öll herbergin erum eð vaski. Tvö herbergi hafa wc/vask inni í herbergjum.

Umhverfið í kring er frábært, frá staðnum er útsýni yfir Dyrhólaey, út á sjó og til jökla. Það er tilvalið fyrir fólk að fara í gönguferðir , t.d. er hægt að ganga niður í Reynisfjöru þar sem tekinn verður í notkun nýr veitingastaður sumarið 2014, eða á Reynisfjall þar sem hægt er að sjá lundann , svo er útsýnið þaðan yfir staðina í kring frábært.

Alla þjónustu svo sem verslanir, sundlaug, golfvöll, veitingastaði og fleira er auðvitað hægt að sækja til Víkur, en þangað er um 7 mínútna akstur.

Share: Facebook Twitter LinkedIn Email

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Rate this by clicking on a star below: *